Rafteymi - kunnáttumenn á sviðum lág- og smáspennu

Rafteymi sinnir Tölvukerfum, aðgangsstýrikerfum, innbrots- og brunavarnaviðvörunarkerfum, loftræstikerfum, loftnetskerfum, ljósleiðaratenginga sem og almennra raflagna.

Fréttir

Þjálfun starfsmanna Rafteymis

Þann 19.október næstkomandi mun Rafteymi senda tvo starfsmenn í þjálfun hjá Mílu í samsetningu koparstrengja og umgengni koparkerfisins. Þetta er liður í samstarfi Rafteymis við Mílu að efla þekkingu starfsmanna og fjárfesta í auknum mannauði. Með þessu námskeiði eykur Rafteymi enn frekar á rekstraröryggi Mílu, en starfsvæði Rafteymis nær frá Bakkafirði að Skeiðarársandi. Rafteymi leggur áherslu á það að þarna séu rafiðnaðarmenn í hverju rúmi og er annar þessara aðila rafvirki og hinn hefur lokið Grunndeild Rafiðnaða.


Fjölgun í Starfsliði Rafteymis

Þann 30.júní var gengið frá Ráðningu nýs starfsmanns og Bjóðum við Eggert Sigtryggson velkominn í öflugan hóp rafiðnaðarmanna Rafteymis, Eggert mun sjá um verkefnastýringu og skipulagningu verkefna ásamt því að fylgja eftir stefnu fyrirtækisins hvað varðar viðskiptavini og starfsmenn. Eggert mun hefja störf 1.september. Eggert hefur víðtæka reynslu úr rafiðnaðar geiranum og mun sú reynsla nýtast Rafteymi vel, þar sem Eggert er Rafvirkjameistari að mennt og rak hann rafverktakafyrirtæki á Akureyri til margra ára. Eggert hefur starfað sem fasteigna og þjónustufulltrúi Fljótsdalshéraðs undanfarinn 6 ár.

Nafnabreyting Rafholt Austurlandi ehf í Rafteymi ehf

Þann fyrsta maí 2010 skipti Rafholt Austurlandi um nafn og heytir fyrirtækið frá og með þeim degi Rafteymi ehf EKKI er um kennitöluskipti að ræða heldur einungis Nafnabreytingu, þessi nafnabreyting er til kominn vegna ýtrekaðs misskilnings um tengls Rafholts ehf og Rafholts Austurlandi ehf því þótti eigenda Rafholts Austurlandi ehf rétt að útiloka allan misskilning og skipt þar að leiðandi um nafn á fyrirtækinu Rafholt Austurlandi ehf.

Samstarfssamningur milli Rafholts Austurlandi og Opinna kerfa

Rafholt austurlandi ehf og opinn kerfi ehf hafa skrifað undir samning varðandi endursölu á öllum búnaði opinna kerfa á austurlandi og er þetta frábær viðbót við þá þjónustu sem Rafholt Austurlandi er að veita viðskiptavinum sínum á Austurlandi og með þessu er verið að vinna að því marki að geta veit viðskiptavinum Rafholts heilsteipta þjónunstu á sviði raf- og tölvulagna.


Austurland

Starfsfólk Rafteymis sinna margvíslegum störfum, má þar meðal annars nefna: þjónustu við Mílu; Vodafone, símann og fleiri fyrirtæki og stofnannir. Markmið Rafteymis er að veita viðskiptavinum fyrsta flokks þjónustu í takt við markmið þeirra fyrirtækja sem Rafteymi hefur Þjónustusamninga við.

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf