Rafteymi - kunnáttumenn á sviðum lág- og smáspennu

Rafholt Austurlandi ehf. var stofnað af fjórum aðilum árið 2005 og hefur fyrirtækið stækkað hratt síðan. Stofnendur fyrirtækisins eru Grétar Magnússon,

Sagan

Rafholt Austurlandi ehf. var stofnað af fjórum aðilum árið 2005 og hefur fyrirtækið stækkað hratt síðan. Stofnendur fyrirtækisins eru Grétar Magnússon, Helgi Rafnsson, Vilhjálmur Magnússon og Guðmundur H Albertsson. Í dag er fyrirtækið í eigu Guðmundar H Albertssonar.Fyrirtækið skipti um nafn árið 2010 og fékk nafnið Rafteymi ehf, eins og nafnið ber með sér þá er merking þess að tákna hóp rafiðnaðarmanna og um leið að sameina starfstöðvar og starfsmenn fyrirtækisins endanlega í einn hóp þar sem fyrirtækið inniheldur mikla breidd rafiðnaðarmanna.

Rafteymi ehf. er með starfsstöð á þremur stöðum á Austurlandi og er lögð sama áhersla á öllum þessum starfsstöðum hvað viðskiptavini og starfsfólk varðar.  Eigandi Rafteymis ehf leggur ofuráherslu á að starfsmönnum og fjölskyldum líði vel í sinni heimabyggð og geti haft störf í nálægð við fjölskyldur sínar.

Hjá Rafteymi ehf. starfa 14 rafiðnaðar og skrifstofumenn.  Um er að ræða 5 rafvirkja, 1 rafeindaverkfræðing, 6 símsmiði og tvo bókara.

Verkefnastaða fyrirtækisins er mjög sterk og ekkert lát virðist vera á verkefnum. Rafteymi ehf. er byggt upp með það sjónarmið að byggja styrkar stoðir undir reksturinn og er það gert til að styrkja rekstur fyrirtækisins og veita aukið rekstrar öryggi gagnvart viðskiptavinum.  Meðal annars má nefna þjónustu við Alcoa, Mílu, Og fjarskipti, Varnarmálastofnun, Landsvirkjun, Símann, Fasteignir Ríkissjóðs, Fljótsdalshérað, Hótel Hérað, Öryggismiðstöð Íslands, Landsbankan, og Íslenska Aðalverktaka.

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf