mánudagur 26.september 2011
Sylvía Verðlaun
Sylvía Dagsdóttir Rafeindavirki og starfsmaður Rafteymis náði þeim merka áfanga að ljúka sveinsprófi með besta mögulega árangri sem hægt er, Það er mikill heiður fyrir Rafteymi að hafa slíkan starfsmann í vinnu sem sýnir slíkan árangur í námi, þetta lýsir þeim styrk sem starfsmenn Rafteymis hafa í þekkingu og getu til að ná árangri í öllu því sem við tökum okkur fyrir hendur og er þetta einnig hvatning fyrir aðra starfsmenn að leggja sitt af mörkum að ná besta árangri sem mögulegt er hverju sinni, við erum stollt af árangri Sylvíu og vonumst til að þetta verði öðrum mikil hvatning. Rafteymi leggur metnað sinn í það að vera með valinn mann í hverju rúmi og veita fyrsta flokks þjónustu með hagsmuni Viðskiptavinarins að leiðarljósi.

